Verk og list

Saumar.Ég var í saumum og ég var að gera náttbuxur. Við byrjuðum að gera æfingarverkefni í saumavélunum til að læra á þær síðan völdum við sídd og gerð á buxum og þegar það var búið klipptum við efnið út og byrjuðum að sauma það saman síðan þurftum við að snúa efninu við og það var dálítið vesen og mikill tími fór í það en svo áttum við að setja teyju inn í buxurnar það var ekkert svo erfitt síðan saumuðum við þetta allt saman og þá voru buxurnar tilbúnar.Mér fannst ágætt í saumum. Heimilisfræði. Síðan fór ég í Heimilisfræði og það var miklu skemmtilegra en saumar en þá gerðum við mat eða brauð eða kökur í hverjum tíma. Við elduðum fyrst síðan lögðum við á borð og þegar við vorum búin að elda fengum við okkur að borða en stundum vorum við allt of lengi að gera matinn þannig að við þurftum að taka hann með heim. Einn daginn var bóklegur tími og það var mjög leiðinlegt. c_documents_and_settings_jonni_my_documents_fish_files_sukkula_i_kakaSúkkulaðikaka

Samfélagsfræði

Ég var að læra um árin frá 870 til 1490 í Íslandssögunni.Það sem mér fannst áhugaverðast voru reglurnar sem voru á þessum árum og mér fannst  þessar hefndir og blóðugu bardagar alveg tilgangslausir.Við lærðum um marga biskupa en sá sem mér fannst áhugaverðastur var Ísleifur Gissurason vegna þess hann var fyrsti Skálholtsbiskup og mér langaði að velja hann útaf hann var fyrsti Íslenski biskupinn og mjög kraftmikill og frumkvöðull í sínu starfi hann var manna vænstur hagastur og bestur. Hann bugaðist ekki í mótlæti heldur hélt sínu striki til æviloka.AlbumImageSkálholt í Biskupstungum

Góðir tenglar

1. Google er mjög góð til að leita að myndum en ég leita ekki að miklum upplýsingum þar.

2. Rasmus er góð síða til að æfa sig í stærðfræði ég mæli með henni.

3. Wikipedia er síða sem er mjög gott að leita að upplýsingum um allt.

4. Vísindavefurinn það er mjög gott að leita að upplýsingum af vísindum.

5. Youtube er mjög góð síða þar eru bara videó og þú getur fundið videó sem þú villt horfa á.


Skólaárið 2008-2009

Mér finnst þetta skólaár hafa gengið mjög vel við erum búin að vera vinna í Snorra Sturlusyni gerðum leikrit um það og það var mjög gaman við erum búin að vera að vinna í hvala verkefni, þemaviku með 5. bekk við vorum líka í stærðfræðidegi með 5,6og 7. bekk. Það sem mér fannst lærdómsríkast er mjög margt en sem var líka skemmtilegt var stærðfræðidagurinn þar lærðum við sudoku og kapal og margt fleira.Þetta skólaár hefur verið mjög skemmtilegt og ég vona að það næsta verði skemmtilegra.

Val með 5 og 6 bekk

Valið með 5. bekk var mjög skemmtilegt þetta var val með öllu mögulegu við lærðum um náttúruna við lærðum um Martin Luther King og um pýramída og margt fleira. Ég lærði margt t.d hvernig dýr lifa í náttúrunni og margt fleira en það sem mér fannst skemmtilegast var að horfa á planet earth.Mér fannst gaman að prufa að vera með 5. bekk því við erum ekki oft með 5. bekk.

 VAL


Landafræði

 Ég byrjaði að skrifa uppkast  og vann þetta svo í Powerpoint ég skrifaði um Noreg og mér fannst það mjög skemmtilegt og áhugavert.  Ég lærði margt af þessu t.d að búa til powerpoint glærur og mér gekk líka mjög vel að setja þetta inn á síðuna.

 


Þemavika

Í vikunni 16-20 Mars vorum við í þemaviku mér finnst þessi þemavika búin að vera mjög skemmtileg mér fannst Afríka og Norður Ameríka skemmtilegustu hóparnir af því við klæddum okkur í Afrísk klæði í Afríku hópnum og í Norður Ameríska hópnum fórum við í hafnarbolta. Mér fannst þetta reyndar allt mjög svipað vegna þess að það voru oftast frumbyggjar sem var talað um og kynningarnar voru mjög svipaðar. Mér fannst Suður Ameríka áhugaverðust vegna þess að inkarnir sem við vorum að læra um voru mjög áhugaverðir. Í heildina fannst mér þetta mjög skemmtilegt.


Leikrit í Snorra sögu

Við í árganginum í 6 bekk erum búin að skrifa handrit um Snorra Sturluson sem við ætluðum að búa til leikrit úr. Okkur var skipt í hópa sem hver og einn hópur fékk einn kafla til að búa til handrit úr. Þetta gekk ágætlega og fórum við svo að æfa og skiptu kennararnir í hlutverk. Ég var valin sem sviðsmaður og lék ekki í hlutverki nema í Flúgumýrabrennu. Svo byrjuðum við að æfa og sviðsmenn skipulögðu sviðið þetta var mjög gaman.Svo þegar við vorum búin að æfa þetta mjög vel ákváðum við að bjóða 1 2 og 3 bekk á generalprufu sviðsmenn fóru þá í stofurnar hjá þeim og buðu þeim á general prufuna.Þessi general prufa gekk mjög vel og daginn eftir það buðum við foreldrum og máttu foreldrar koma með veitingar. Þessi sýning gekk mjög vel og allir voru ánægðir með hana svo eftir það máttum við fá okkur veitingar.Þetta var mjög gaman og ég held að ég viti mjög mikið um Snorra Sturluson eftir þetta allt.


Snorra saga

Við í 6 hj erum búin að vera að læra um Snorra Sturluson við erum búin að lesa bókina og vera í vinnubók tengdri henni. Við fórum svo í Reykholt og þar tók Geir Waage á móti okkur hann sagði okkur frá ævi Snorra Sturlusonar. Mér fannst það mjög áhugavert svo sáum við kjallarann sem hann var drepinn í og hann sagði okkur frá honum, svo sýndi hann okkur Snorralaug og mér fannst þetta allt mjög áhugavert og skemmtilegt.Svo kom Einar Kárason í heimsókn í skólan okkar og sagði okkur smá frá sturlungum.Hann er búin að skrifa nokkrar bækur um sturlunga t.d Ofsi og Óvinafagnaður.Mér fannst það reyndar ekkert sérstakt þegar hann kom.


EGLU-VERKEFNI

Við í 6 bekk vorum að læra um Eglu sem er um Egil Skallagrímson við lásum bók sem heitir Egla og og svöruðum spurningum í stílabók. Svo áttum við að gera video um ljóð eftir Egil  sem heitir Það mælti mín móðir. Við fórum á moviemaker náðum í myndir inna google og lásum ljóðið upp svo vistuðum við það inna youtube og áttum svo að seta það inna blog síðuna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dalmar Ingi Daðason
Dalmar Ingi Daðason
Ég heiti Dalmar ingi Daðason og er að búa til þessa síðu til að seta námið inn á.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband